Find your spot on earth and ride it !!
Ni�?�?�?°urtalning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1738 dögum
07.05.2007 14:47:54 / hafdis_m

Litli frændi..

 

Hæhæ ég var að setja inn myndir af litla frænda mínum, allir að skoða hvað hann er yndislega fallegur !!

 

http://123.is/hafdism 


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 15:03:56 / hafdis_m

Vangaveltur...

Sæl...

 

Ég er að prufa að blogga á 123.is, finnst svo gaman að geta sett inn myndir og ég hef ekki þolinmæði í að gera það á síðunum þar sem maður setur eina í einu.. ;Þ

Langar samt soldið frekar að vera áfram með þetta blogg þar sem ég nenni ekki að byrja uppá nýtt... Veit einhver um geðveikt góða síðu þar sem hægt er að setja myndir hratt inn ? ;Þ

 

En endilega kíkjið samt á hina.. það er ný færsla ! Og Kjósa svo...

 

http://123.is/hafdism

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 14:37:33 / hafdis_m

Veikindafrí...

Góðan daginn...

 

Ég er bara heim í veikindaleyfi eftir að ég meiddi mig í skellinöðruslysinu ;Þ Fór í vinnuna á mánudaginn en var að drepast þannig að ég fór til læknis og hann sagði að ég yrði að vera heima í 2-3 vikur í viðbót og ætti helst bara að liggja uppí rúmi og reyna að beygja fótinn, ekkert að vera að labba of mikið... ;/  Finnst sssvvvooo hundleiðinlegt að sitja svona heima og gera ekki neitt... allir að vinna eða í skólanum þannig að ég er bara alein.... En systir mín og guðmunda eru nú heima líka þannig að ég fer stundum og hangi þar í staðinn og kíki á gullmolana mína ;)

 Litli strákurinn hennar systir minnar er bara yndislegur... með sssvvvooo mikið hár !! Hef aldrei séð annað eins, hann þarf bara að fara í klippingu ;)

 En ég fór í bíó í gær með Guðmundu og Karí á Perfect stranger, við vissum ekkert hvað við vorum að fara á.. vissum ekki einu sinni um hvað myndin var en hún var bara mjög fín ;) Líka klassaleikarar...  En núna styttist í að sumarið komi, og það þýðir minni bið í utanlandsferðirnar okkar ;)

 

Ég og Bjössi vorum að kaupa okkur glænýja krossara ;) En því miður verðum við aðeins að bíða eftir þeim en það verður geðveikt þegar þeir koma !!! Ég er líka búin að kaupa mér allan gallann og allt ! Þetta er ekkert smá dýrt en gaman... Vona að ég slasi mig bara ekki á þessu... ;Þ

 Svo er sumarbústaðurinn okkar alveg að verða tilbúinn !! Þetta er svo flottur bústaður að það hálfa væri nóg... það eru 3 menn sem vilja kaupa hann bara NÚNA en þeir fá það ekki því þetta er okkar fjölskyldubústaður.. ;)   Held party þar í sumar og bíð fólkinu mínu... ef ég þori :Þ  Set inn myndir af honum þegar ég nenni... sem verður örugglega fljótlega því ég hef ekkert annað að gera !!

Set mynd af hjólinu mínu með !! ;)

 

En man ekki fleira í bili... C ya.. ;*


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 18:55:28 / hafdis_m

Skrítið líf..

 

Halló...

Það er frekar mikið búið að gerast hjá mér núna um páskana, ég byrjaði á því að slasa mig á hjólinu hans Lárusar síðasta miðvikudag, en það svínaði fyrir mig bíll og ég keyrði (hjólaði) á vegg og inn í garð... Nú er búið að banna mér að setjast nokkurn tímann á eitthvað sem heitir mótórhjól ;Þ  En ég er búin að vera á hækjum og fór til læknis aftur áðan og það er einhver vökvi undir hnénu sem líkaminn nær ekki að losa sig við en það á að bíða í viku í viðbót með að opna þetta til að losa út vökvann og þeir vona að líkaminn geri þetta sjálfur á viku en ég verð örugglega frá vinnu í 1-2 vikur ;(  Svo er ég marin alveg frá hné og niður ! En vill samt taka það fram að þetta var engan veginn mér að kenna, ég kann alveg á þetta ef það var bílinn sem svínaði fyrir mig ! Ég varð bara gegt stressuð og vildi reyndi að beygja frá bílnum og endaði þá þarna.... þetta er svo skrítið því maður er svo óvarin, bara í gallabuxum og peysu en ég var sem betur fer með hjálm ! :)

 

Svo gerðist það sorglega í gær að elsku afi minn dó, eini afinn sem ég hef nokkurn tímann átt og ég á eftir að sakna hans svo mikið :(

 

Svo gerðist það yndislega áðan (bara fyrir svona einum og hálfum tíma) að systir mín eignaðist fullkomlega heilbrigðan strák og ég fékk að fara að skoða hann alveg strax áður en hann var vigtaður og allt ! Hann er svo yndislega fullkominn og með brjálað mikið hár !!!! Ég sá hann opna augun sín í fyrsta skiptið... Get ekki beðið eftir að Erla hringi í mig og leyfi mér að koma aftur ;Þ En Sindri og Ísabella voru ekkert smá hamingjusöm með litla bróðir, en fannst það nú soldið skrítið að mamma sín og lilli gátu ekki bara komið heim núna :Þ

 

En ætla ekki að hafa það lengra í bili, þetta er svo skrítið líf... Einn daginn missir maður ástvin og hinn daginn fæðist nýr ;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 18:41:01 / hafdis_m

Aðeins þunn ;Þ

Góðan daginn, ætla ekki að hafa þetta langt að sinni... Er að fara niðrá spítala að heimsækja elsku afa minn :)

En það er nú ekkert brjálað mikið að frétta, mamma og pabbi eru útá kanarí og verða þar í viku í viðbót... hlakka til að fá þau heim :)

Helgin var skemmtileg, fór í afmæli til Gumma Þórs en hann var þrítugur strákurinn og þar var mjög mikið fjör og svo var farið á ball og það var geðveikt gaman !!! Langt síðan það hefur verið ball hérna og var bara rosalega gaman :)

 Svo var auðvitað fegurðarsamkeppnin núna um helgina en ég komst því miður ekki... frétti samt að þetta hafi verið fín keppni og mér finnst allavega æðislegt hvað margar stelpur fengu titil :) Gaman þegar þetta deilist svona, en ég er bara búin að skoða myndirnar inná www.ungfruisland.is og þær eru gegt sætar ;*

 Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, kíkja á gamla kallinn ;)  Cya ;*

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 17:04:52 / hafdis_m

Vinna og vinna !

Halló aftur...

Er alveg afspyrnuléleg í þessu bloggdrasli... en ákvað að skrifa smá þar sem ég hef ekkert annað að gera ! Er alein í nýrri íbúð og verð alein heima í viku :( Mamma og pabbi eru uppá Hvanneyri og Bjössi að skíða í Ölpunum....

Það er nú svosem ekki mikið að frétta af mér, er bara að vinna og vinna alla daga og aðra hvora helgi þannig að maður hefur ekki tíma til að geta gert mikið meira.. Við fórum samt á snjósleðana þegar það var snjór og það var ekkert smá gaman ! Langar að fá meiri snjó... það er svo þæginlegt að geta skotist bara svona á sleðana og þurfa ekki að fara í dagsferð eða meira uppá jökul ;Þ

Ég er alveg að missa mig í sambandi við þetta háskóladæmi ! Get bara engan veginn fundið það út hvað ég eigi að læra ! Er að pæla í að bíða þangað til á næsta ári með að fara í háskólann en það er þá líka eins gott að ég verði búin að finna hvað ég vill læra, nenni ekki að fara þangað bara til þess að fara í eitthvað ! :)

En já ég er að horfa á Beverly hills og er að missa af einhverju mikilvægu held ég ;Þ Er alveg húkt á þessum þætti, hann byrjar akkurat þegar ég kem heim úr rútunni... Reyni að blogga fyrr næst, það verður þá líka einhver að skrifa komment annars nenni ég þessu ekki ;Þ


» 10 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 19:14:44 / hafdis_m

Gleðileg Jól

Halló og gleðileg jól ! ;)

Það er sko margt búið að gerast hjá mér þessa dagana, ég og Bjössi erum byrjuð að búa í íbúðinni minni, reyndar bara þangað til 1.feb en þá ætlum við að flytja aftur til mömmu og pabba í einhvern tíma.. :)

Svo var ég að útskrifast með stúdentspróf af félagsfræðibraut og verslunarpróf af viðskiptabraut, geðveikt gaman að vera búin að klára þennan skóla !! Ég hélt ræðuna fyrir hönd útskriftanema og það gekk bara mjög vel, var samt að drepast úr stressi ;Þ ég fékk líka hellling af flottum pökkum (3 dögum fyrir jól) ;Þ

Ég fékk t.d. 3 hálsmen, peysu, armband, síma, snyrtidót og margt fleira :)

Svo var bara verið að vinna og svo komu jólin og það var æðislega gaman... þá fékk maður einnig helling af pökkum ;Þ En það sem stóð aðeins uppúr var gjöfin frá mömmu og pabba ! en þau gáfu mér og Bjössi ferð til spánar næsta sumar í 2 vikur (flug og gisting og alles) en þau eru ekkert smá klikkuð... Við vorum sko búin að panta þessa ferð öll fjölskyldan saman og við ætluðum bara að borga þeim þegar þau myndu fá visa reikninginn en neinei ! við fengum hana bara í jólagjöf... Sko bróðir minn, Guðmunda og Ester Eir  fengu líka þessa ferð og systir mín og hennar fjölskylda :)

En já þetta voru mjög góð jól og vona að næsta ár verði eins gott og þetta var :)

Sjáumst síðar...

p.s. ætla að láta fylgja mynd af mér síðan í útskriftinni.. :) (verður kannski soldið skrítin þar sem ég þarf að minnka hana)


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 23:37:06 / hafdis_m

Spá í að hætta...

Góða kveldið..

Núna er ég alveg að spá í að hætta að blogga, er komin með ógeð á þessu og er lélegasti bloggari í heimi :)

Það er nú samt alveg hellingur að frétta af mér, ég var að kaupa mér glænýjan bíl í síðasta mánuði og það er æðislegt að vera á svona nýjum bíl :) En þetta er toyota corolla, svört og geðveikt pæjuleg :lol:

Svo er ég flutt heim til Bjössa, það er fínt að vera hérna en ég sakna samt hússins míns gamla og mömmu og pabba en þau búa uppá Hvanneyri núna og ég er alltaf að keyra á milli :(

En þau fara nú kannski að fara að kaupa sér eitthvað hérna á Akranesi og þá flytjum við til þeirra aftur ;Þ

En það er orðið soldið mikið að gera hjá mér núna þar sem að ég er að reyna að vera dugleg í skólanum svo ég útskrifist nú örugglega í desember :) Þarf einmitt að fara að leita mér af vinnu...

En jæja ætla ekki að hafa þetta lengra í bili.. Sjáumst :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.09.2006 13:44:37 / hafdis_m

Allir að svara :)

Hæjj.. Mér þætti mjög vænt um ef þið mynduð taka ykkur tíma og svara þessu :)

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifin/nn af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.09.2006 19:44:56 / hafdis_m

Kominn tími fyrir blogg ;)

Hæhæ.. Langt síðan ég hef bloggað en ég hef verið að spá í hvort ég eigi bara að hætta þessu.. er engan veginn að sinna þessu nóg :)

Það er nú mikið búið að gerast í þessum mánuði en sæta systir mín gifti sig þann 12. ágúst :) Þetta var pottþétt skemmtilegasta brúðkaup í heimi, getur örugglega enginn toppað það ;Þ Dagurinn gekk bara eins og í sögu og var betri en okkur grunaði.. Erla og Fanni eru líka bara svo æðisleg að auðvitað var dagurinn það líka ;)

Vill óska þeim innilega til hamingju í 100 skipti og vona að þau verði saman að eilífu !! Og ég væri meira en til í að endurtaka þennan dag ;Þ

 

Annað sem gerðist er að sæta litla frænka mín fékk fallegt nafn en hún heitir Ester Eir Heimisdóttir og ég er guðmóðir hennar ;) Nú erum við Bjössi bæði guðforeldrar yfir 2 yndislegum stelpum ! :) Sem þýðir að við þurfum ekkert að koma með barn strax því við dekrum bara við þær ;)

En ég er alltaf í heimsókn hjá Ester Eir og ég fæ bara ekki nóg af henni.. sakna hennar ekkert smá ef ég hitta hana ekkert heilan dag :) Hún er besta barn í heimi (með Sindra og Ísabellu auðvitað)

Já svo er ég nottla bara í skólanum og er að fara að útskrifast af félagsfræði og viðskiptabraut núna í desember ! Get ekki beðið eftir að vera búin með þetta... :)

Svo er Karí mín farin frá mér í skóla í Danmörku !! Sakna hennar geðveikt mikið en við erum nú duglegar að tala saman en er samt farin að bíða eftir að hún komi heim ;Þ

Jæja ætla að fara að borða, held að Sindri og Ísabella hafi ætlað að fá að gista hjá okkur þannig að það verður stuð hérna í kvöld :)

 

p.s. er alltaf að reyna að setja inn myndir með færslun en það gengur ekki.. reyni þetta betur seinna eða finn mér einhverja góða myndasíðu :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.08.2006 23:10:09 / hafdis_m

Mikið að gerast ;)

Góða kveldið :)

Jæja núna er ég sko búin að eignast litla fallega frænku, hún er svo sæt og fullkomin.. ég get endalaust horft á hana og haldið á henni ;)

Hún kom í heiminn þann 22. júlí og er algjör gullmoli.. Henni finnst rosa gott að vera hjá frænku sinni og við ætlum að verða bestu vinkonur... Ætla að setja hérna 2 myndir með mér og henni og Bjössa og henni...

Ég get samt svo ekki beðið með að vita hvað hún á að heita.. verður pottþétt eitthvað fallegt ;) Segja mjög margir og þar á meðal Heimir og Guðmunda að hún minni sig á mig þegar ég var lítil :)

 

Ég og yndisfríð ;)

 

Æhhjj hvað hún  lítil og sæt hjá honum ;)

 

 

Annað sem er búið að vera í gangi er gæsunin hjá systir minni... ég var búin að eyða ekkert smá miklum tíma í þetta og ég er rosalega ánægð með daginn ;) Segja stutt frá því hvað við gerðum við hana...

Fyrst létum við hringja í hana frá Olís og segja að það væri brjálað að gera og að hún yrði að koma og hjálpa þeim og auðvitað sagði hún já og var komin stuttu seinna ;) Þar tókum við á móti henni og Elín Ólöf málaði hana gegt flott (svona mix af Sylvíu Nótt og Heru) og við klæddum hana í rosa fallegan búning.. ég og mamma vorum búnar að sauma bleikasta og ýktasta pils í heimi ;)

Svo var hún sótt uppí olís og farið með hana rúnt á mótórhjóli og henni fannst það alveg gegt gaman :) Næst var hún látin selja smokka niðrá torgi og hún var mjög dugleg og stoppaði bíla og allt ;)

Á eftir sprellinu fórum við í tívolí í smáralind og sendum hana í kúluna.. við ætluðum bara að senda hana eina en neinei !! þá mátti hún ekki fara ein og einhver af okkur varð að fara með henni, þannig að við horfðum allar á hvor aðra og engin vildi fara en svo endaði með því að ég fór með henni og það var hræðinlegt !!! Hef samt farið áður þannig að ég vissi aðeins hvernig þetta var... Hehe við keyptum svo spóluna af okkur í kúlunni og gegt fyndið að horfa á þetta... :)

Á eftir smá sprelli í tívolíi og smáralind fórum við í dekur í Mekka spa.. Erla fór í heilnudd og við fórum í pottinn og laugina ;) Ég mætti þar með ÁTVR verslunina (eins og stelpurnar kölluðu það) og þar var ekkert smá næs að vera... mæli mjög mikið með þessum stað, við gátum komið með okkar eigin áfengi og svo var því bara þjónað oní okkur ;Þ

Eftir yndislegt dekur og ágæta drykkju fórum við út að borða á Caruso og við fengum að vera mjög útaf fyrir okkur þar því við vorum nógu margar ;) Við fengum mjög góðan mat og góða kokteila :) Þar gáfum við henni góða gjöf og í henni var egg, klámmynd og sleipuefni með bananabragði (létum hana smakka sleipuefnið aðeins ;Þ) Strákarnir gáfu Fanna líka svona gjöf þannig að þau ættu að eiga eitthvað að dóti ;Þ

Svo eftir matinn klæddum við Erlu aftur í búninginn (leiðinlegt af okkur, hún hélt hún væri sloppinn) og létum hana klára að selja smokkana, hún var ekki í miklum vandræðum og seldi þennan eina smokkapakka (s.s. 12 smokka) á næstum því 10.000 ;) Var að selja smokkinn á 500 til 1000 krónur :)

Þegar allir smokkarnir voru búnir fórum við í karókí með hana (og hún fattaði ekki alveg strax að fara úr búningnum þannig að hún var þannig í karókíinu)... Þar söng hún 3 lög ;Þ Hehe alveg yndislegt... :)

 

Eftir karókíið fórum við niðrí bæ og inná óliver og rölt.. svo fórum við bara heim að lúlla :)

Þetta var allavega geðveikt skemmtilegur dagur og vona að yndislega systir mín hafi við ánægð með þetta og það er líka eins gott að hún gifti sig bara einu sinni því það er ótrúlega mikil vinna á bak við svona gæsun !! ;)

 

Æjj hvað þú ert sæt ;**

 

Jæja þá er ég farin uppí rúm... Góða nótt :**


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.07.2006 14:57:31 / hafdis_m

Hann á afmæli í dag! :)

Góðan daginn...

Hann Bjössi minn á afmæli í dag og er orðin 23 ára :) Ég er að fara núna heim til mömmu hans með kökuna sem ég bakaði í gærkveldi og halda pínu afmælisveislu, samt bara við og Siggi og Bidda+ börnin og svo auðvitað Kata sæta :)

Það er bara búið að vera brjálað að gera hjá mér í sumar, vinna og vinna hverja helgi og ég á að fara að vinna núna á eftir en ég er búin að ná mér í eitthvað yndislegt kvef og geri ekkert annað en að hnerra og hósta og að farast úr hausverk þannig að mín yndislega systir (sem er núna uppí sjoppu að vinna) reddaði mér bara fríi og sagði mér að vera heima og ná þessu úr mér... Thanks love :**

Ég og Karí fórum í bæinn á fimmtudaginn og loksins náði ég að eyða peingum !! Eyddi kannski aðeins of mikið og ætla ekkert að gefa upp neina tölu hérna en það voru líka inní því afmælisgjöfin hennar Karítasar og Bjössa og innflutningsgjöf til bróðir míns og Guðmundu.. Svo náði ég auðvitað að versla aðeins á mig og keypti svo bleikan sundbol handa Ísabellu því hún var að fara í sund með leikjanámskeiðinu sínu og pabbi hennar fann sko bara svartan og bláan!!!!!! Það gekk auðvitað engan vegin þannig að ég þurfti að finna bleikan :)

Já auðvitað... ég náði þýskunni í sumarskólanum, fékk 8 og er alveg rosa sátt.. er samt mest ánægðust með að við náðum öll 6 sem fórum úr FVA saman :)

Svo er hún Guðmunda mín bara að fara að eiga núna á hverri stundu, er sett á næsta fimmtudag þannig að maður bíður bara eftir símtali :) Hún er ssvvoo dugleg, vona að ég verði svipuð og hún þegar ég verð ólétt, hún var að hringja í mig núna og biðja mig að koma með einhverjar buxur sem hún ætlaði að stytta fyrir mig, ég hafði nú ekkert hugsað mér að hún næði að gera þetta næstum strax en neinei hún er bara í fullu fjöri :) Ég og Bjössi kíktum til Heimis og Guðmundu í gær en það endaði með því að Heimir sofnaði og Bjössi fór með Davíði því ég og Guðmunda vorum að horfa á Bachelorette og það kom ekkert annað til greina :Þ

Jæja ég ætla að fara að kíkja á þetta lið, Gylfi var víst að spyrja Bjössa áðan hvort hann fengi ekki að hitta Dísu (hann er sá eini í heiminum sem fær að kalla mig þetta!) :)

Sjáumst síðar :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.06.2006 18:09:05 / hafdis_m

Sumarið loksins að koma ;)

Góðan og blessaðan daginn ;)

Hvað er að frétta ? Það er  búið að vera brjálað að gera hjá mér og er ekki búin að hafa tíma til að blogga...

Ég er orðin 20 ára ! Hélt tvisvar uppá afmælið mitt og það var geggjað skemmtilegt, fyrst hélt ég partý hérna heima og það voru svona 25 manns og ég fór næstum á hausinn við að halda þetta afmæli því það var soldið dýrt, keypti áfengi fyrir 30.000 og svo var svona létt fæði í boði og svona :) Það voru um 50 og eitthvað bjórar og 25lítrar af bollu !! :)

Ég fékk rosa margar og yndislega fallegar afmælisgjafir, t.d. tvö hálsmen, mynd, vínrekka, vínflöskur, gjafabréf í nudd og út að borða og líka gjafabréf uppá 8000 hjá hárhús Kötlu, utanlandsferð og helllling meira ! ;)

Já hélt líka afmæli með þeim nánustu og ég bakaði og bakaði og bakaði, var svo þreytt í afmælinu mínu að ég sofnaði inní sófa á meðan gestirnir voru að borða ;Þ

Ég er að fara í lokapróf í þýsku 403 núna á mánudaginn og er farin að kvíða soldið mikið fyrir því þar sem að ég er ekkert að fatta í þessu... efast um að ég nái en ég ætla nú samt að reyna :/

Var að koma úr sumarbústaðinum mínum og þar gengur allt bara eins og í draumi, Bjössi og Siggi voru að vinna þar núna og auðvitað Pabbi minn og 2 útlendingar ;Þ Þeir eru ekkert smá duglegir og þetta fer nú bara að verða tilbúið... Fanni er nú alltaf þarna líka en var að fara í brúðkaupsveislu ;)

Ég ætla að vera í þessum bústað alltaf þegar hann er tilbúinn :)

Jæja ætla að fara að gera eitthvað, kíkja á lærdóminn þar sem ég verð vonandi allan daginn á morgun að veiða :)

Sjáumst síðar... :) 


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 14:51:41 / hafdis_m

Fríið búið ! ;)

Jæja þá er bloggfríið mitt búið og ég er komin til baka... ætla að reyna að verða aðeins duglegri í þessu en svo sjáum við bara hvað gerist :)

Ohh ég er svo hamingjusöm að vera búin í prófum !! og ég NÁÐI ÖLLU :) Ég hélt nú að ég væri 100000% fallin í tveim fögum, stærðfræði og sögu. Mig gekk svo illa í stæ prófinu að ég fór næstum að gráta í miðju prófi og var svo miður mín þegar ég kom heim að ég hélt ég myndi deyja !! ÉG GAT BARA GERT 54% AF PRÓFINU ! Þannig að ég bjóst nú ekki við að ég myndi ná en nei svo fór ég og skoðaði prófið og þá var ég bara með 53% rétt ! :) Var semsagt með allt rétt sem ég gerði nema var með einn Rétt mínum :) En kennarinn viðurkenndi við prófsýninguna að þetta hefði verið drulluþungt próf ! Ég var líka búin að gera 4 gömul próf til að undirbúa mig og lét svo stæ kennara sem ég þekki fara yfir það og þá var ég alltaf með átta komma eitthvað en svo kom ég þarna í lokaprófið og þá var þetta eins og svart og hvítt !! En það skiptir ekki máli nuna :) :) :)

Svo í sögu fór ég og skoðaði prófið og fékk bara 8 !!! Guð ég er nú orðin einum of montin af sjálfri mér en ég hef líka sjaldan verið eins hamingjusöm eins og daginn sem ég fékk einkannirnar....

Ein önn eftir og þá verð ég stúdent af félagsfræðibraut og viðskiptabraut !! :) Hlýt að þola það...

Bjössi bauð mér út að borða til að halda uppá að ég hefði náð öllu, það var eins og hann hafði lesið hugsanir mínar því það var einmitt það sem mér vantaði !! :) Fórum á Hereford og fengum geggjaðan mat !! ;)

Hehe ég tala eins og ég sé vön að falla gegt en það er ekki það... var bara svo viss um að ég hefði fallið í stærðfræði og sögu ! ;Þ

Jæja nóg komið um þennan skóla, ég er byrjuð að vinna uppí Norðurál, í eldhúsinu :) Það er rosalega fínt og er bara mjög ánægð þar... Þetta verður samt bilað sumar hjá mér því að ég er að fara að vinna uppí Norðurál og Olís og er bara með 3 fríhelgar í ALLT SUMAR !! :(  Geri s.s. ekki mikið annað en að vinna... en svo er sumarskólinn minn að byrja núna á föstudaginn, ég og Karítas, Elísa, Arnar og Hörður ákváðum að fara í sumarskóla í þýsku til að sleppa að þurfa að fara í það hérna hjá Úrsúlu næstu önn ;Þ Vona bara að við náum því ! :)

Já það er ekki mikið meira að frétta... það er núna orðið rosalega stutt í að ég verði tvítug en ég er nú að vinna báðar helgarnar í kringum það þannig að það er óvíst hvort það verði haldið partý... Langar samt rosa mikið að gera eins og ég og Hafdís Ragna ætluðum að gera saman, leigja sal og halda geðveikt stórt partý en hún er bara svo leiðinleg að ætla að vera í Danmörku í sumar (djók Hafdís mín)... Veit ekki hvort ég nenni að standa í þessu ein ;)

Jæja ætla að fara að gera eitthvað... þarf að fara útí búð, var víst búin að lofa Bjössa að útbúa fylltar kjúklingabringur og svo grillar hann það ;)

C ya later... og ef einhver á afmæli í kringum í 13. júni og langar að halda með mér þá má hann prufa að hafa samband ;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 17:10:29 / hafdis_m

Kórónan farin.. ;Þ

Góðan daginn og takk fyrir síðast ;Þ

Það er nú ekkert rosalega mikið að frétta af mér... núna síðustu helgi var hin árlega Ungfrú Vesturland og það var rosalega gaman á keppninni... ;)

Það er reyndar tómur staður í herberginu mínu þar sem að kórónan var ;/ En það er allt í lagi, fínt að þetta sé búið þótt að þetta var rosalega gaman... :)

Ég var mjög ánægð með úrslitin í keppninni núna.... Aldís átti það svo sannarlega skilið að vinna, hún er svo gegt sæt og yndisleg ;) Allan tímann á meðan keppnin var í gangi og aðdragandinn að henni þá sagði ég að Elísa ætti að vera í sæti.. mér finnst hun svo sæt ;) Svo var hún bara líka í sæti !! Þær áttu það ssvvo vel skilið.... Ég þekki rosalega lítið stelpuna sem var í 3. sæti en hún var mjög glæsileg á keppninni þannig að hún átti það alveg skilið :) Hefði samt verið gaman að fá að krína einhverja sem ég þekki en það er allt í lagi.... Ég fékk að krína Heiðu með oroblu titilinn (sem ég vissi að Heiða myndi vinna) og það var æðislegt ;)

Mér finnst rosalega leiðinlegt hvernig allir eru að tala um að þetta séu ekki stelpur héðan sem unni 1 sætið og þriðja... Skil alveg að fólk er að velta sér uppúr þessu með Lilju því að hún býr ekki hérna en mér finnst ekki hægt að lýsa því saman við Aldísi.. Hún býr hérna og er búin að gera það núna í dágóðan tíma, hún er í skóla hérna og vinnu og svo kemur hún með að búa hérna áfram...

En ég vill óska öllum stelpunum til hamingju með titlana sem þær fengu... ;** Held samt að ég sé búin að óska þeim öllum til hamingju :)

 

Jæja stóri bróðir minn og Guðmunda eru að yfirgefa okkur.. ;Þ Þau eru að flytja núna í dag og ætla að sofa fyrstu nóttina í nýju íbúðinni í nótt ;) Það verður rosalega tómlegt hérna án þeirra... en ég og Bjössi verðum bara að vera dugleg að fara í heimsókn :)

Vegna þess að Heimir og Guðmunda eru að fara þá ætlum við að vera aðeins lengur heima hjá mömmu og pabba... mamma getur ekki ýmindað sér að við förum bæði á svona stuttum tíma... þannig að þegar íbúðin mín losnar þá ætla ég bara að leigja hana aðeins lengur ;) Vantar einhverjum íbúð á leigu í sumar ;Þ

Allir að skoða myndirnar sem ég var að setja inn !!! Systir mín tók þær og þess vegna eru þær eiginlega allar af mér ;Þ

 


» 13 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5